tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ekkert grín um þetta, þetta er raunverulega grafalvarlegt. En hv. þingmaður spyr: Hvað annað ef ekki borgarlína? Og þar hef ég, að ég held, bara verið býsna skýr í afstöðu minni og svörum. Ég er fylgjandi góðum og bættum almenningssamgöngum en ég held að sú leið sem á að fara, í gegnum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og borgarlínuverkefnið, sé afspyrnuslæm. Hún hefur það sem eitt af meginmarkmiðum sínum, það var yfirlýst í byrjun en svo áttuðu menn sig á því að það var ekki skynsamlegt að halda því til haga, að þrengja að almennri umferð og hún er slæm að því leyti. Það flækir allt verkefnið að hafa borgarlínuakreinarnar miðjusettar og eykur tafir í almennri umferð. Ég hef verið þeirrar skoðunar að við eigum að leggja áherslu á að bæta við akreinum í útjaðri hverrar brautar. Það er ódýrara, það bætir flæðið, það þvælist minna fyrir fólksbílum og atvinnubílum sem um vegina fara og er, eins og ég held að ég hafi sagt áðan, töluvert ódýrara.
Það er félagsskapur starfandi í bænum, Samgöngur fyrir alla, heitir hann. Þórarinn Hjaltason og fleiri reynsluboltar í umferðarverkfræði eru þar í fararbroddi. Ég er þeirrar skoðunar að þær lausnir séu miklu ódýrari, og það blasir við, en það sem hér er lagt til í tengslum við borgarlínuna og niðurstaðan hvað varðar umferðarflæði og bætta þjónustu almenningssamgangna verður um það bil hin sama og lagt er til með verkefnum borgarlínu.
Lausnirnar eru til staðar, menn þurfa bara að hafa kjark til að stíga frá þeirri dómadagsdellu sem allt kerfið hefur gengið út á að innleiða hér árum saman. Það er skrifað undir þennan samgöngusáttmála (Forseti hringir.) 26. september 2019, ef ég man dagsetninguna rétt. Það eru liðin fimm ár síðan og þetta er allt með einhverjum losarabrag (Forseti hringir.) og erfitt að greina hvað er fram undan eins og staðan er núna.