157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[17:33]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hér er einhver reginmisskilningur á ferðinni. Þetta verkefni sem hér er lagt til kallar ekki á að þvingaðar séu fram 80% umferðartafir áður en áhrif af því verða raunveruleg. Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á hvernig hv. þingmaður kemst að þessari niðurstöðu. Það breytir því ekki að það er annað sem er nauðsynlegt að halda til haga. Það er enginn, held ég, að leggja til að gera ekki neitt í almenningssamgöngum. Ég kom inn á það í ræðu minni að ég væri fylgjandi góðum almenningssamgöngum og tel að það ætti að leggja áherslu á þær. Ég kom inn á í andsvari hér á undan með hvaða hætti ég sæi fyrir mér að það yrði til gagns. Ég myndi t.d. vilja sjá í þessum tölvukeyrðu líkönunum hver áhrifin af tillögum samgangna fyrir alla yrðu í þessum sömu líkönum til þess að við gætum borið saman hvað við erum að fá fyrir peninginn, því að í annarri nálguninni eru miklu minni áhrif á almenna umferð sem þó flestir kjósa að nýta sér. Á þeim svæðum þar sem kæmi til þrenginga samkvæmt þessu verkefni þá erum við að bera saman nákvæmlega sama umferðarmagn, sama fjölda bíla, á hverju svæði fyrir sig eftir 7–8 ár, ef forsendur samgöngusáttmálans ganga eftir um 1,7% vöxt á ári. Það þarf ekki að þvinga fram einhverjar aðrar tafir til að átta sig á áhrifunum af því. Ég skal gera aðra tilraun á eftir til að útskýra þetta ef hv. þingmaður áttar sig ekki á því. Þetta er alveg skýrt.