157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[17:37]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að gera aðra tilraun. Við erum að bera saman punktstöðuna næsta febrúar. Fjöldi bíla á götum Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins er 100. Það er punktstaðan sem við berum saman við aðra punktstöðu eftir átta ár þar sem umferð hefur vaxið um 1,7% á ári. 12% farinna ferða eru með borgarlínu. Það hefur náðst allur sá árangur sem bjartsýnustu stuðningsmenn borgarlínunnar vonuðust eftir. Hann hefur náðst. Ég er að gefa mér þær forsendur. Við erum að bera saman þessa tvo punkta, febrúar 2026 og febrúar 2033. Á þessum tveimur tímapunktum er sami fjöldi bíla á götum borgarinnar uppi á bíl, miðað við forsendur samgöngusáttmálans. Þess vegna sjáum við með fullri vissu, með þessari tillögu sem hér er lögð til, hver áhrif þrenginganna verða eftir 7–8 ár þegar sama umferðarmagn er orðið á götunum að öllum borgarlínuárangrinum innleiddum, jafn líklegt og það nú er. Það er það sem er lagt til hérna; sama umferðarmagn á götunum og við leggjum til að við skoðum það út frá þeirri umferðarrýmd sem skilin verður eftir fyrir almenna umferð. Ég treysti mér ekki til að reyna að útskýra þetta betur.