157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[17:50]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort hv. þm. Bergþór Ólason hefur kynnt sér tillögur hópsins sem kallar sig Samgöngur fyrir alla, en það hef ég gert, alla vega á einhverju stigi. Tökum sem dæmi gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrautar, sem ég held að við þekkjum mörg. Ef við förum suður eftir þá eru þar nokkur gatnamót og fyrstu gatnamótin eru til móts við Hamrahlíð. Hópurinn Samgöngur fyrir alla leggur til að þau gatnamót verði mislæg. Næst er Listabrautin, þar sem Verslunarskólinn er, og hópurinn leggur líka til að þau gatnamót verði mislæg. Á þessum litla kafla leggur hópurinn Samgöngur fyrir alla, gerði það alla vega á sínum tíma, til tvenn mislæg gatnamót. Síðast þegar ég vissi kostuðu mislæg gatnamót nokkra milljarða.

Ég ætla til að byrja með að draga í efa það sem hv. þingmaður heldur fram, þ.e. að það sé augljóst að tillögur hópsins Samgöngur fyrir alla séu miklu ódýrari en það sem lagt er fram. Á þessum kafla eru lögð til tvenn mislæg gatnamót — og þau eru miklu fleiri af því að það er útgangspunkturinn. Það er því alls ekki þannig að tillögurnar í heild sinni séu ódýrari. En það er lítið mál að meta þessar tillögur eins og aðrar í einhverjum líkönunum. Mig minnir að hópurinn hafi lagt það til á sínum tíma að stór hópur myndi fá gefins rafbíl í stað þess að nota strætó. Mér finnst því sumt í tillögum hópsins bera vott um ákveðinn pólitískan hrekkjalómsskap en annað er alvarlegra. Mér finnst lítið mál að meta þetta en ég dreg í efa þá fullyrðingu þingmannsins að allt sem hópurinn leggur til sé miklu ódýrara. Hópurinn leggur til ógrynni mislægra gatnamóta og þau eru dýr.