tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er auðvitað þannig að göngubrúin yfir Fossvog er sennilega að verða sú dýrasta í heimi eins og þróun kostnaðar við hana er að verða. Það er því svigrúm fyrir mislæg gatnamót eða tvö myndi ég halda innan heildarmatsins. En auðvitað þarf að meta þetta allt heildstætt. Í ljósi þess að hv. þingmaður hjó dálítið í hugmyndir þessa hóps sem kallar sig Samgöngur fyrir alla, er varðar mislægu gatnamótin, spyr ég: Hver er afstaða hv. þingmanns til mislægra gatnamóta sem slíkra? Er hv. þingmaður kategórískt á móti þeirri lausn eða leggur hv. þingmaður sjálfstætt mat á það hvað varðar hver gatnamót fyrir sig eða hvern vegarkafla fyrir sig? Mér hefur þótt tónninn frá Reykjavíkurborg, þar sem hv. þingmaður sat áður sem borgarfulltrúi, vera heldur neikvæður til þeirrar umferðarlausnar sem þó er óumdeilt að tryggir best umferðarflæði. Svo eru það auðvitað önnur sjónarmið sem koma til skoðunar. En mér leikur hugur á að vita: Hver er afstaða hv. þingmanns til mislægra gatnamóta sem lausnar á fjölförnum punktum?