tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.
Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi taka það fram að ég hef hitt fulltrúa úr þessum hópi sem ég nefndi áðan og átti við þá ánægjuleg samtöl á meðan ég var borgarfulltrúi Reykjavíkur. Ég legg það nú oftast á mig að kynnast sem flestum sjónarmiðum. Ég er ekkert kategórískt á móti mislægum gatnamótum, fjarri lagi. Á þeim stöðum sem ég nefndi áðan finnst mér þau fráleit hugmynd. Mislæg gatnamót eiga ekkert sérstaklega heima nálægt byggð í miðju borgarumhverfi. En þegar maður er kominn á einhvern annan stað þá má vel vera svo. Ég segi bara keisaranum það sem keisarans er. Þegar maður er í hraðbrautaumhverfi fer mjög vel á því að leysa vandann með hraðbrautarlausnum. Ef við fáum einhvern tímann Sundabraut eða Sundabrú þá er gert ráð fyrir að hún tengist við Reykjanesbrautina norðan Miklubrautar með einhvers konar mislægum gatnamótum og samgöngusáttmálinn, sem ég styð, gerir ráð fyrir fjölda mislægra gatnamóta. Ég hef stutt samgöngusáttmálann og þar með stutt þær lausnir sem þar eru. Ég er alls ekki á móti hugmyndum um mislæg gatnamót almennt séð en auðvitað er það þannig að í þéttri borgarbyggð taka mislæg gatnamót mikið pláss og eru ekki endilega alltaf til prýði. Þegar við erum komin inn í þéttasta svæðið er miklu betra að reyna að leysa úr umferðarvandanum með öðrum hætti. En mislæg gatnamót — það er fjarri lagi að ég eða minn flokkur, eða raunar þau sem stjórna í Reykjavík, séum kategórískt á móti þeim.