tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.
Herra forseti. Hér er athyglisverð tillaga á ferðinni og ég vil lýsa yfir fullum stuðningi mínum við hana þótt ég sé ekki á henni einhverra hluta vegna. En auðvitað verður að prófa hlutina áður en menn leggjast í tugmilljarða eða hundruð milljarða framkvæmdir. Menn þurfa að sjá árangurinn, sjá afleiðingar af fyrirhuguðum framkvæmdum. Það hefði t.d. verið ágætt fyrir örfáum árum síðan, kannski átta árum síðan, ef við hefðum getað sett upp einhvers konar líkan af því hvað myndi gerast við tilkomu stækkunar Landspítala á umferðareyjunni hérna fyrir ofan. Það hefði verið ágætt að sjá það því að allir sjá það, herra forseti, í dag, það er svo augljóst öllum og ég held að það séu fáir sem mótmæla því, hvers lags mistök var þarna um að ræða. Menn eru strax farnir að tala um það að það þurfi að byggja spítala á hentugri stað. Samt er ekki búið að klára þennan. Kostnaðartölur sprengja utan af sér allar umbúðir. Þetta var fyrirséð, herra forseti, en á það var ekkert hlustað. Menn eru oft á hálfgerðri sjálfstýringu í vitleysunni, hver apar upp eftir öðrum og menn trúa á einhvers konar fræðinga, einhver líkön, einhverja tölvuuppsetningu á málum og segja: Já, þetta er rosalega flott og setja af stað hópa og nefndir og ráð. Ég held að það séu þegar einhverjir menn eða konur að vinna við að undirbúa þessa borgarlínu, einhver skrifstofa, þannig að þetta er komið á fleygiferð. Því miður, herra forseti, virðist þetta vera búið að hleypa þessu af stokkunum því það er farið að undirbúa brúna yfir Fossvog og strax þar sjáum við að áætlanir gera ráð fyrir að brúin muni kosta hátt í 40% meira heldur en gert var ráð fyrir. En menn halda bara áfram. Menn bera enga ábyrgð.
Svo aka menn hér um götur borgarinnar í umferðarteppu, eyðandi sínum tíma í mengun og kolefnisútblæstri, sem má nú víst ekki að minnast á í því sambandi. Það er stórkostlegur fórnarkostnaður fyrir samfélagið, stórkostlegur, í stað þess að breikka vegi, gera mislæg gatnamót. Það er ekki búið að gera hér mislæg gatnamót, herra forseti, jú, kannski eitt eða tvö en á síðustu tíu, fimmtán árum er hægt að telja þau á fingrum annarrar handar og jafnvel minna. Fyrir 30, 40 árum voru mislæg gatnamót í smíðum, bara iðulega, eitt eða tvö hérna á höfuðborgarsvæðinu. Það má alls ekki tala um það að liðka fyrir umferð og gera mislæg gatnamót t.d. á Bústaðaveginum, Breiðholtsbraut/Bústaðavegur, það kemur ekki til greina, en menn mega bíða þar í löngum röðum daginn út og daginn inn á leið til vinnu og úr vinnu, eyðandi sínum tíma og menga þar með umhverfið. Ég veit ekki á hvaða vegferð menn eru.
Ég held að það væri bara gott ef það væri gerð tilraun og þessum akreinum yrði lokað til þess að fá fram áhrifin. Hvernig myndu viðbrögðin verða hjá borgarbúum ef öllum þessum akreinum og beygjuakreinum yrði lokað? Þessum akreinum sem borgarlína á að fara um núna fljótlega yrði lokað þannig að menn sæju áhrifin og gætu snúið til baka. Kannski myndu menn vakna upp við vondan draum og snúa til baka. Þá væri til einhvers af stað farið. Ég veit ekki með tvær, þrjár vikur. Ég myndi nú spá því að ef menn færu í svona tilraun þá myndu þetta aldrei vera tvær, þrjár vikur, menn myndu gjörsamlega gefast upp á öðrum degi. En það má auðvitað ekki prófa þetta, ekki frekar en með Landspítalann.
Það eiga sér stað æfingar, brunaæfingar t.d., iðulega hjá stofnunum og þá þarf fólk að labba út úr sínum skrifstofum út á götu. Þurfum við þess? Nei, auðvitað þurfum við þess ekki, við getum gert þetta bara allt í tölvunni, séð hvað fólk er lengi að labba og hvar það labbar og hvert það fer. Eigum við ekki bara að sleppa öllum brunaæfingum? Við getum bara látið tölvuna segja okkur hvernig þetta muni ganga, hvort einn yrði eftir eða enginn. Auðvitað þarf að æfa svona hluti. Við getum ekki farið blindandi út í hlutina.
Ég vildi benda á kostnaðinn. Kostnaður við borgarlínu er of mikill. Það eru hér mjög málsmetandi menn, sérfróðir á sínu sviði, sem hafa bent á það í fjöldamörg ár að það sé til ódýrari lausn. Af hverju vilja menn ekki hlusta á það? Af hverju vilja menn ekki hlusta á það frekar en með Landspítalann og mörg önnur verkefni sem menn hafa sett á sjálfstýringu og séð allt of seint að þeir fara villur vegar? Þetta er eitthvert gæluverkefni meiri hlutans í Reykjavík og illu heilli, herra forseti, fékk hann meiri hlutana í grenndinni, í Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, til að að gera þennan höfuðborgarsáttmála, sem var að mínu mati einhvers konar greiðsla, eitthvert lausnargjald sem þeir greiddu þessir aðilar sem ég nefndi hér áðan fyrir það að samþykkja borgarlínu í þeirri von — og það eru nokkur ár síðan — að fá betra flæði í umferðinni. Hvað hefur gerst síðustu fjögur, fimm árin frá því þetta var gert? Ég held að það hafi verið 2019, eitthvað svoleiðis. Hvað hefur gerst? Það hefur nánast ekkert verið gert, nánast ekkert gerst, herra forseti. Það er dapurlegt þegar búið er að benda á ódýrari lausnir sem koma að sömu notum. Það er dapurlegt.
Strætó hefur verið að anna 4% af ferðum, 4% í mörg ár. Kannski er það komið í 5% núna, ég veit það ekki. Menn dreymdi um að fara í 12%. Það er langur vegur frá þrátt fyrir að menn hafi einbeittir þrengt að umferð hvaðanæva á höfuðborgarsvæðinu og þetta er komið út fyrir Reykjavík vegna þess að í Kópavogi er þetta líka byrjað, það er verið að loka þar akreinum og beygjuakreinum sem hafa liðkað fyrir umferð og menn sitja þá bara lengur þar á gatnamótum en áður, algerlega að óþörfu. Hvað gengur mönnum til? Hvernig stjórna menn samfélagi? Í þágu borgaranna eða í þágu hvers? Einhverrar draumsýnar, herra forseti? Auðvitað eigum við að reyna að vinna fyrir borgarana, að þeir komist til vinnu sinnar á skikkanlegum tíma og að það sé greitt úr umferð eins og hægt er, ekki að menn séu í einhverjum fílabeinsturni að teikna upp einhverja draumsýn fyrir þá sem þurfa svo að nota það og festast í umferðarteppum.
Ég ætlaði kannski ekki að nefna mikið meira en þetta en vil nefna líka framtíðarsýnina, herra forseti. Ég sé fyrir mér og það ætti auðvitað löngu að vera búið að gera áætlanir um það að klára ýmis verkefni og horfa svolítið til framtíðar fyrir höfuðborgarsvæðið. Menn taka einhver hænuskref í einhverjar áttir sem þeir eru ekki fyrir fram búnir að ákveða sig með og byggðin þróast jafnvel þangað sem síst skyldi og kemur í veg fyrir augljósar samgönguæðar sem ættu að liggja þar um. Ég vil nefna Sundabrautina sem er auðvitað grátlegt dæmi um ráðaleysi, ákvarðanafælni og viljaleysi þeirra sem stjórna, sérstaklega í Reykjavík.
Ég vil einnig nefna, fyrst ég hef tíma, Fossvogsbrúna. Auðvitað átti hún að þjóna almennri umferð líka. Ég vil nefna tengingu upp á Geldinganes. Þar er gott byggingarland og myndi tengjast ef Sundabraut yrði að veruleika. Ég vil nefna tengingu út á Álftanes, héðan úr Reykjavík yfir á Álftanes, og létta þar með á umferð á Reykjanesbraut og öðrum æðum á höfuðborgarsvæðinu. Auðvitað verðum við að hugsa það sem stórborg, sem það er.