157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[18:06]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir ræðuna. Ég vil segja það aftur, líkt og ég sagði í fyrra andsvari hér í dag, að ég deili áhyggjum þingmanna af auknum umferðarþunga á höfuðborgarsvæðinu, bæði í dag en líka hvað varðar þróunina til næstu ára. Það gera sveitarstjórnarfulltrúar allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og það gerði innviðaráðherra á sínum tíma. Því settust þessir aðilar niður, fengu til sín ráðgjafa, sérfræðinga, til að kortleggja það hvernig hægt væri að minnka umferðartafir á næstu áratugum og mæta þeirri miklu fólksfjölgun sem fyrirhuguð er og hefur raungerst frá því að undir þetta samkomulag var ritað.

Niðurstaðan varð þessi: Að fara blandaða leið, að styrkja virka ferðamáta, svo sem hjólreiðar, en eins og ég kom inn á áðan hafa hjólaferðir á höfuðborgarsvæðinu rúmlega tvöfaldast á síðastliðnum tíu árum. Samhliða því var ákveðið að fara í að styrkja almenningssamgöngur, bæði með nýju leiðaneti eða að efla strætó, sem hefur nú þegar verið gert. Nú er hvert metárið á fætur öðru eftir að það verkefni fór í gang og við erum að tala um 45% aukningu á ferðum sem farnar eru í strætó á síðastliðnum tíu árum. Það sem vantar í þessa jöfnu, ef við ætlum að vanrækja það að efla þessa þætti, og það sem vantar í þessa tillögu sem við erum að fjalla um hér, er það hvað gerist ef það eru ekki fleiri sem kjósa að nota almenningssamgöngur eða hjólreiðar. Þá bætast nefnilega við milljónir ferða á akbrautirnar. Það að ætla að fara að loka ákveðnum akbrautum til að fá að sjá hvernig umferðarflæðið verður þegar borgarlínan er komin í gagnið — skilur hv. þingmaður að það vantar inn í þá jöfnu að bæta við þeim bílum sem munu bætast við á næstu árum út frá öllum líkönum?