157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[18:08]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir hans ábendingar. Já, ef það hefur orðið 45% fólksfjölgun í strætó á síðustu tíu árum — þetta var 4% fyrir svona fimm árum þannig að það má kannski mínusa eitthvað af þessu. Hugsanlega er þetta þá komið í 5% í dag, rúmlega. Ekki er árangurinn mikill þegar menn stefndu að því fyrir 14 árum að aukast um 4% í 12%. Þetta er ekkert að ganga. Og varðandi spurningu hv. þingmanns um það að ferðir myndu aukast — ég var með ákveðna lausn á því. Við verðum að fara að hugsa. Höfuðborgarsvæðið er svolítið langt og mjótt í þessa átt og svo langt og mjótt í hina áttina. Við þurfum að búa til hringtengingar líka út á sjó. Þá talaði ég um Álftanesið, ég talaði um Sundabrautina, Fossvogsbrautina, sem á ekki að þjóna venjulegri umferð, og auðvitað tek ég undir með hv. þingmanni hvað varðar hjólreiðar, að þær hafi aukist. Það er bara hið besta mál. En það breytir því ekki að langflestir borgarbúar og íbúar hér á höfuðborgarsvæðinu kjósa að reka erindi sín á sínum fjölskyldubíl. Það er þannig og við breytum því ekkert þó að við viljum það kannski, þó að okkur dreymi um veröld þar sem allir fara í strætó og svo séu pípararnir kannski á sínum bíl. En það breytir því ekki að þetta er svona. Við verðum auðvitað að þjóna borgarbúum fyrst og fremst. Við getum ekki þjónað einhverri draumsýn sem við höfum í okkar huga. Borgarbúar eru á bílum. Við þurfum að gera þeim kleift að komast á sem skemmstum tíma á milli staða. Það er svo einfalt.