157. löggjafarþing — 16. fundur,  14. okt. 2025.

tilraunaverkefni um lokun vegkafla sem áformað er að setja undir borgarlínu.

62. mál
[18:10]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil aftur koma hér upp og fara yfir það að ég er hjartanlega sammála; við þurfum einmitt að tryggja umferðarflæðið á höfuðborgarsvæðinu þannig að það gangi sem best fyrir sig. Ég var að fara yfir þetta samkomulag, samgöngusáttmálann, og var búinn að fara yfir hjólreiðarnar og strætóferðirnar. Við erum að tala um það að í Reykjavík eru um 8% ferða í dag farnar með strætisvagni og 13% þeirra sem fara í skóla taka strætó. Þetta eru nýjustu tölurnar sem við höfum þannig að við erum vissulega á leið í rétta átt. En öll gögn og allar greiningar sýna að ef strætó situr fastur í sömu umferð og bílarnir þá er það ekki góður kostur. Þess vegna er verið að fjárfesta í þessu borgarlínuverkefni sem einmitt á að taka stofnbrautaflæðið, í og úr vinnu flæðið, þar sem fólk verður fljótara að taka borgarlínuna en einkabílinn. Þá verður það raunhæfur kostur fyrir marga, ekki alla. Og líkt og hefur komið fram hér er markmiðið aðeins 12%. Áfram er gert ráð fyrir að 88% ferða verði farnar á einkabíl. En ef við náum að breyta ferðavenjum framtíðarkynslóða og þeirra sem geta nýtt sér þessar stórbættu samgöngur þá eykur það umferðarflæðið hjá 88% borgarbúa. Það er lykilatriði. Það er ekki verið að þröngva öllum í almenningssamgöngur heldur einmitt verið að hugsa um það hvernig við liðkum fyrir umferðarflæði á höfuðborgarsvæðinu.

Að lokum vildi ég koma inn á það, og það eimir kannski af því að fólk hefur sett sig mismikið inn í þessi mál varðandi umferðarflæðilíkönin, hvernig þau virka, að hv. þingmaður kom inn á það, virðulegur forseti, að ekki væri verið að fara í stofnvegaframkvæmdir og mislæg gatnamót. En 40% af þeim fjármunum sem ráðstafað er í samgöngumálin fara einmitt í stofnvegaframkvæmdir og snúa m.a. að mislægum gatnamótum á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar, það er hluti af samgöngusáttmálanum. Það er búið að vera í Arnarnesveginum, það er búið að vera í Vesturlandsveginum, Suðurlandsveginum. Það er verið að gera ný mislæg gatnamót þar sem Kópavogur og Breiðholt mætast á Arnarnesbrautinni. Ég hvet hv. þingmann og þá sem eru að horfa til að fara á verksjá.is. Það er hægt að sjá svart á hvítu hvaða verkefni er búið að framkvæma og hver eru fram undan og það er einmitt líka verið að gera mislæg gatnamót til að auka umferðarflæðið á höfuðborgarsvæðinu.