ábyrgð ríkisstjórnar á þingmálum.
Virðulegi forseti. Ég kom hérna upp áðan og í lokaorðum mínum minnti ég á að það er ríkisstjórnin sem hefur vald. Hún hefur vald til að gera ýmislegt en það er alveg á hreinu að öll mál sem þið leggið fram, sem eru lögð fram, eru ekki á ábyrgð síðustu ríkisstjórnar. Hér kom hv. þingmaður áðan upp og benti á að mál er varðar skemmtiferðaskip, afleitt mál, hafi verið unnið af síðustu ríkisstjórn. Það skiptir engu máli. Þið eruð að leggja þetta mál fram aftur. Vissulega mun ég koma með breytingartillögu á þessu máli, alveg klárt, en ég held að það hafi ekki verið ein breytingartillaga samþykkt frá minni hluta síðast þannig að ég bind ekki miklar væntingar við að hún verði samþykkt. En málið er algjörlega á ykkar ábyrgð.