157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[15:36]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Ég hef unnið að málefnum launafólks á undanförnum áratugum þar sem réttindi og skyldur launafólks eru stærstu viðfangsefnin. Íslenskur vinnumarkaður er mjög umfangsmikill og störf eru fjölbreytt. Okkur hefur á stundum skort á skýra stefnumótun í málefnum atvinnulífsins sem hefur kallað á miklar sveiflur í framboði og eftirspurn eftir starfsfólki. Stefnumörkun í atvinnulífinu hefur að mínu mati verið takmörkuð en það er mikilvægt að samfélagið hafi skýra sýn á það hvert við viljum stefna, hvaða atvinnugreinar fái að blómstra og að þær skili sem mestum verðmætum til samfélagsins og mögulegt er.

Á sama tíma verða störfin að vera góð og vel launuð. Við búum í samfélagi þar sem réttindi og skyldur eru skýr, þar sem leikreglur eru settar til að fara eftir þeim. En það er því miður ekki svo að leikreglur séu alltaf virtar. Auk þess er ekki svo komið að öll störf séu metin að verðleikum.

Frú forseti. Vísbendingar eru um að vinnumansal viðgangist víðar en okkur grunar. Nýverið var fjölmiðlaumfjöllun um vinnustaði þar sem ekki voru til staðar leyfi sem þörf var á til að standa að rekstri fyrirtækja og grunur var um að launakjör starfsfólks hafi verið langt undir lágmarkslaunum kjarasamninga. Mig langar að nýta þetta tækifæri til þess að fara yfir þau atvik sem ég hef persónulega komið að með einum eða öðrum hætti í gegnum mitt fyrra starf. Við sjáum oftar en ekki dæmi þess að erlent launafólk er hlunnfarið, þar sem launakjör eru ekki í samræmi við það sem við eigum að venjast hér á landi, mörg tilvik þar sem fólk getur ekki um frjálst höfuð strokið, þar sem fólk er hreinlega selt til starfa.

Mansal á að sjálfsögðu ekki að líðast á Íslandi. Það er mikilvægt að við tökum höndum saman hér á Alþingi og gerum hvað við getum svo framkvæmdarvaldið hafi þau verkfæri í höndunum sem þarf til að uppræta brotastarfsemi á vinnumarkaði.

En veltum aðeins fyrir okkur hvernig staða fólks er þegar það er í þessari aðstöðu. Í svo til öllum tilvikum sem ég þekki hefur verið um að ræða fólk af erlendu bergi brotið, fólk sem hefur ekki stuðningsnet í kringum sig hér á landi, fólk sem hefur ekki burði fjárhagslega til að koma sér úr aðstæðum. Og um leið og fólki er rétt hjálparhönd þá verður kerfið allt að vera tilbúið til að standa við bakið á viðkomandi. Hvar á ég að vera í nótt? er fyrsta spurningin sem kemur upp. Verkalýðsfélögin hér á landi hafa haft burði til þess að tryggja einstaklingum húsnæði til skemmri tíma þannig að fólk geti fótað sig. Því næst er að tryggja framfærslu. Það er auðvitað stórmerkilegt að þegar brotið er vísvitandi á launafólki, laun eru ekki greidd í samræmi við kjarasamninga sem gilda hér á landi, þá eru afleiðingar sáralitlar. Ábyrgðaraðilar fyrirtækja þurfa á einhvern óskiljanlegan hátt ekki að greiða annað en vangoldin laun og vexti ofan á þau ef viðkomandi yfir höfuð er dreginn fyrir dómstóla. Það dylst engum að þessi hópur stígur síður fram og er ólíklegri til að fara með mál fyrir dómstóla.

Frú forseti. Svo eru önnur tilvik þar sem atvinnurekendur greiða sínu fólki ekki rétt laun. Atvinnurekendur eru í ábyrgðarstöðu þegar kemur að því að gera upp við starfsfólk, hvort sem það eru laun fyrir dagvinnu, yfirvinnu og/eða orlof. Því miður koma upp tilvik þar sem atvinnurekendur standa ekki skil á sínu og þá leitar starfsfólk til síns verkalýðsfélags sem aðstoðar viðkomandi við að innheimta launin. Dugi það ekki til er síðasta úrræðið að leita til dómstóla. En eins og ég sagði áðan þá verður það aðeins til þess að fyrirtækið þarf að greiða réttmæt laun.

Ég tel löngu tímabært að sett verði í lög ákvæði um févíti. Með þessu ætti viðkomandi starfsmaður að fá slíka greiðslu þegar komið hefur verið upp um brot á kjarasamningum. Slíkt myndi veita aðhald til að vanda til verka.

Frú forseti. Mig langar að spyrja hvernig hæstv. ráðherra hyggst tryggja að brot á réttindum launafólks, þar með talið launaþjófnaður, hafi raunverulegar afleiðingar fyrir atvinnurekendur. Er þörf á að styrkja lagaumgjörð til að sporna gegn skipulögðu vinnumansali og launaþjófnaði? Og hvernig hyggst ráðherra beita sér fyrir því að styrkja vinnustaðaeftirlit verkalýðsfélaganna og efla samstarf við opinbera aðila til að sporna við brotastarfsemi á vinnumarkaði? Það er þetta eftirlit sem skilar langmestum árangri.