157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[15:47]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu sem er mikilvæg og það var gott að heyra hæstv. ráðherra koma inn á lagabreytingarnar, lögin sem við samþykktum í lok júní 2024 er vörðuðu breytingar á ýmsum lögum vegna samstarfs og eftirlits á vinnumarkaði. Það var mikilvæg breyting sem var mikil sátt um í þessum þingsal. Þetta var undir lok síðasta kjörtímabils.

Ég vil líka nefna að því samfara samþykktum við breytingar á lögreglulögum. Það var reyndar frumvarp sem var öllu erfiðara að koma í gegnum þingið en það laut að auknum heimildum lögreglu til að fylgjast með og berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi. Reynslan er sú að þegar um mansalsmál er að ræða og alvarleg brot á vinnumarkaði þá er það yfirleitt, ef ekki alltaf, skipulögð brotastarfsemi og tengist jafnvel annars konar brotum. Þess vegna er mjög mikilvægt að lögreglan hafi fengið þessar auknu heimildir sem við veittum henni til þess að geta aflað slíkra upplýsinga og sitja á slíkum upplýsingum. Þess vegna er þessi samstarfsnefnd og samráð þessara aðila svo mikilvægt og ég vænti þess að við sjáum árangur af því. Ég hygg að það væri rétt að við fengjum hér líka skýrslu frá hæstv. dómsmálaráðherra um það hvernig til hefur tekist eftir að þær breytingar áttu sér stað.

Virðulegur forseti. Eins og hv. þingmaður kom inn á hér í upphafi þá á mansal ekki að líðast á Íslandi. Það getum við öll verið sammála um. Þess vegna er svo mikilvægt að okkar eftirlitsaðilar hafi þau tæki og tól sem þarf til þess að rannsaka slík mál. Ég hygg að með þeim breytingum sem við gerðum á lögunum á sínum tíma höfum við einmitt verið að tryggja það, bæði með breytingum á lögreglulögum og svo líka með breytingum á lögum um þetta samstarf aðila á vinnumarkaði og ég vona svo sannarlega að það reynist rétt að við náum slíkum árangri. Ég hvet hæstv. ráðherra til að halda áfram með að fylgjast vel með því hvort þau markmið muni ekki nást.