157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[15:52]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni fyrir að vekja athygli á þessu máli. Það er hægt að nálgast þetta mál frá mörgum hliðum en við höfum bara tvær mínútur til að fjalla um það. Umræðan er ekki ný af nálinni og hefur fólk vaknað upp við vondan draum, þá sérstaklega hvað varðar mögulegt vinnumansal hér á Íslandi. Það er víða pottur brotinn í okkar kerfi. Sérfræðileyfakerfið gerir fólki t.d. kleift að fá dvalarleyfi á grundvelli sérfræðimenntunar sem er í sjálfu sér mjög gott. Samtök iðnaðarins hafa lengi vakið athygli á því að hugverkaiðnaðurinn sé vaxandi geiri þar sem vantar í síauknum mæli sérfræðinga.

Við höfum séð hvernig hægt er að misnota þetta kerfi mjög nýlega þar sem fólk var flutt hingað til lands á fölskum forsendum, sem er því miður hræðilegt vinnumansalsmál. Ætla má að vinnumansal sé umfangsmeira en fólk gerir sér grein fyrir hér á landi. Fólk af erlendu bergi brotið, sem kemur hingað á þeim forsendum að skapa sér og fjölskyldu sinni betra líf, er oft blekkt hingað á fölskum forsendum eins og nýleg dæmi hafa sýnt. Þolendum vinnumansals er oft gert að vinna langa vinnudaga þvert á getu og vilja og við höfum séð dæmi um að þolendum sé gert að búa í óviðunandi húsnæði ásamt gríðarlegum fjölda fólks. Þeim er ítrekað hótað að missa vinnuna eða hótað að vera vísað úr landi. Þessir einstaklingar leita sér síður hjálpar en fólk á almennum vinnumarkaði sem verður fyrir brotum á réttindum sínum.

Virðulegi forseti. Ég velti því fyrir mér hvort ekki sé tilefni til að huga sérstaklega að þessum hópi þegar við vinnum sérstaka stefnumótun í þessum málaflokki og við frekari umræðu um brot á launafólki.