157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[15:57]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Á undanförnum árum höfum við séð og upplifað of mörg dæmi um launaþjófnað og brot á réttindum launafólks. Slík mál eiga sér stað í skjóli veikrar stöðu fólks sem á erfitt með að verja sig. Þar má nefna fólk af erlendum uppruna, farandverkafólk eða einstaklinga sem búa við lítið félagslegt stuðningsnet og hafa takmarkaða þekkingu á réttindum sínum og skyldum vinnuveitenda. Þessi brot eru ekki aðeins ósanngjörn, þau eru siðferðislega forkastanleg og grafa undan trausti á íslenskum vinnumarkaði. Það sem gerir þessi mál enn alvarlegri er að stundum tengjast þau skipulagðri brotastarfsemi, jafnvel mansali. Þá er um að ræða kerfisbundna misnotkun á fólki sem veit ekki betur eða þorir ekki að stíga fram. Þess vegna er brýnt að stjórnvöld, verkalýðsfélög og eftirlitsaðilar hafi skýrar heimildir og úrræði til að bregðast við.

Þegar brotið er vísvitandi á launafólki verður að vera ljóst að það hafi raunverulegar afleiðingar. Í dag hefur slíkt athæfi oft engar afleiðingar fyrir vinnuveitandann. Laun eru einfaldlega greidd eftir á ef mistök koma í ljós. Ef brotið er af ásetningi þarf að tryggja að það hafi fjárhagslegar afleiðingar. Við verðum að skilgreina sektir eða önnur viðurlög sem bæta tjón launafólks, viðurlög sem hafa raunverulegan fælingarmátt gagnvart fyrirtækjum sem hyggjast sniðganga reglur.

Virðulegi forseti. Samfélagið, löggjafinn og framkvæmdarvaldið verða að tala einni röddu. Réttindi launafólks eru óumsemjanleg og kjarasamningar eru ekki valfrjálsir. Það er með öllu ólíðandi að vinnuveitendur geti komist upp með að brjóta vísvitandi á starfsfólki sínu án afleiðinga. Við verðum að verja þá sem minnst mega sín, standa vörð um réttlæti og tryggja að vinnumarkaðurinn byggist á virðingu, ábyrgð og heiðarleika.