157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

launaþjófnaður og brotastarfsemi á vinnumarkaði.

[16:11]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Aftur vil ég þakka málshefjanda, hv. þm. Kristjáni Þórði Snæbjarnarsyni fyrir að kalla eftir þessari góðu, gegnu og nauðsynlegu umræðu ásamt því að ég þakka öllum hv. þingmönnum sem hafa lagt sitt af mörkum í umræðunni. Ég fagna jafnframt öllum tillögum um frekara samstarf hins opinbera og aðila vinnumarkaðarins sem miðar að því að vinna gegn þeirri vá sem mansal og launaþjófnaður sannarlega eru. Það er glæpur að brjótast inn á heimili og stela eignum. Það er ekki síður glæpur að halda eftir launum fólks að ósekju eða greiða fólki langtum lægri laun en samkvæmt gildandi kjarasamningi. Það er glæpur að hneppa fólk í mansal.

Ég kalla eftir því og mun fylgja því fast eftir að óprúttnir aðilar sem vísvitandi eru að fara illa með launafólk verði látnir axla ábyrgð. Aftur segi ég bara, hv. þingmenn og þeir sem hafa komið hér í ræðustólinn okkar til þess að ræða þessi mál: Ég heyri að það er samstaða hjá okkur öllum. Við erum að taka saman höndum. Við gerum okkur öll grein fyrir vánni sem við erum að glíma við akkúrat núna. Við erum aldrei að fara að ráðast að þeim að einu eða neinu leyti sem standa sig gagnvart sinni starfsemi og sínu launafólki, aldrei nokkurn tímann. Við sendum þeim kærleikskveðjur og þakklæti fyrir það að virða þær reglur og það vinnuverklag sem við höfum skapað og á að heita eðlilegur, heilbrigður vinnumarkaður. Þannig að betur má ef duga skal og ég ber miklar vonir til þess að við eigum eftir — og hugmyndin kemur hér og nú: Það er kannski ástæða til þess að við hv. alþingismenn og öllsömul setjumst niður og höldum góða vinnustofu þar sem við teiknum upp öll þau úrræði og allar þær lausnir sem við getum sett á borðið og raunverulega tekist á við vandann og raunverulega útrýmt þessum andstyggðarundirboðum og mansalshryllingi sem við erum að takast á við. Úr því held ég að yrði bara eitthvað stórkostlega gott. Ég kalla eftir því samtali. Ég mun boða ykkur á svona vinnufund.