hagsmunir hreyfihamlaðra og skipulagsáætlanir í Reykjavík.
Virðulegi forseti. Það hefur verið furðulegt að fylgjast með nýlegri umræðu um aðgengi hreyfihamlaðs fólks í tengslum við fyrirætlanir vinstri meiri hlutans í Reykjavík. Barátta sem margir töldu að væri vel á veg komin hefur þurft að vera endurvakin og áfangar sem við töldum að hefði verið náð í þessum málaflokki eru heillum horfnir í huga flokkanna sem nú stýra borginni. Þannig hefur baráttufólk fyrir hagsmunum hreyfihamlaðs fólks bent á að skipulagsáætlanir nýrra hverfa í Reykjavík gangi freklega gegn grunnréttindum þeirra og fari jafnvel gegn lagaskyldum um aðgengi. Má m.a. nefna Berg Þorra Benjamínsson og Þuríði Hörpu Sigurðardóttur. Þar sem ítrekaðar kröfur, ábendingar og athugasemdir frá fulltrúum hreyfihamlaðs fólks hafa ekki mætt neinum undirtektum af hálfu meiri hlutans í borginni bregð ég á það ráð að taka upp málið hér í þinginu fyrir hönd þessa hagsmunahóps.
Það er auðvitað ótrúleg staða sem er komin hér upp og mikið skref aftur á bak þegar fólk með fötlun þarf að lúslesa torskilin og oft á tíðum falin skipulagsgögn til að tryggja grundvallaraðgengi; rétt sem við höfum tryggt kirfilega í lögum og reglum. Fullyrt hefur verið að með þessu framferði sé meiri hlutinn í Reykjavík að færa aðgengismál 30 ár aftur í tímann. Meðal þess sem er augljóst brot á réttindum hreyfihamlaðs fólks eru áform meiri hlutans í Reykjavík um að útrýma bílastæðum og uppbygging einhvers konar miðlægra bílastæðahúsa í úthverfum. Það er því mikilvægt að kalla fram afstöðu hæstv. ráðherra til stöðu hreyfihamlaðs fólks þegar kemur að þessum málum. Hæstv. ráðherra fer jú fyrir málaflokki fatlaðs fólks og þannig vill til að flokkur hæstv. ráðherra stýrir líka umræddri höfuðborg og þar með skipulagsmálum í Reykjavíkurborg. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Ætlar hæstv. ráðherra að beita sér þarna fyrir hagsmunum hreyfihamlaðs fólks? Og ef svo er, hver eru áformin og hvernig munu áherslur hæstv. ráðherra birtast í þessum efnum?