hagsmunir hreyfihamlaðra og skipulagsáætlanir í Reykjavík.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir þessa góðu fyrirspurn. Hv. þingmaður spyr hvort að ég muni beita mér fyrir hagsmunum hreyfihamlaðra í skipulagsáætlunum nýrra hverfa í Reykjavík.
Skipulagsáætlanir Reykjavíkur eru svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, aðalskipulag Reykjavíkur og deiliskipulög í nánar tilgreindum svæðum. Fulltrúi Flokks fólksins er í skóla- og frístundaráði en hugsanlega stýrir hún þessu skipulagi, ég er ekki alveg með það á hreinu. Eða hvað heldur hv. þingmaður um það? Ég held ekki. En er sem sagt einn af stórum hópi góðs fólks sem eru að stýra Reykjavíkurborg.
Mín aðkoma að skipulagsáætlunum sveitarfélaga er óbein, enda er yfirferð skipulagsáætlana á höndum Skipulagsstofnunar en sem ráðherra þá get ég lagt til breytingar á skipulagslögum og skipulagsreglugerð. Yfirferð Skipulagsstofnunar á deiliskipulagsáætlunum er samræmd fyrir öll sveitarfélög og miðar að því að tryggja að ákvæðum skipulagsreglugerðar sé fylgt eftir, eftir því sem efni og aðstæður gefa tilefni til. Í dag gilda ákveðnar kröfur um aðgengi sem kemur að gerð skipulagsáætlana. Á deiliskipulagsstigi er sérstaklega litið til aðgengis fatlaðra og settir skilmálar um fjölda og frágang bíla- og hjólastæða. Í skipulagsreglugerð segir, nánar tiltekið í b-lið gr. 5.1.1., að markmið með gerð deiliskipulags sé m.a.:
„Að aðgengi allra að mannvirkjum sé tryggt og að sérstakt tillit sé tekið til þarfa barna, fatlaðra og aldraðra við tilhögun og hönnun mannvirkja og almenningsrýma.“
Við yfirferð Skipulagsstofnunar á deiliskipulagsáætlunum er m.a. athugað hvort að ákvæði skipulagsreglugerðar séu uppfyllt en kröfum um aðgengi og fjölda bílastæða er fyrst og fremst framfylgt við útgáfu byggingarleyfa. Þar gilda mannvirkjalög og byggingarreglugerð. Eitt af meginmarkmiðum mannvirkjalaga er að tryggja aðgengi fyrir alla og er það gert með því að hafa að leiðarljósi algilda hönnun. Algild hönnun merkir:
„Hönnun framleiðsluvara, umhverfis, áætlana og þjónustu sem allir geta nýtt sér, að því marki sem aðstæður leyfa, án þess að koma þurfi til sérstök útfærsla eða hönnun.“
Skilgreiningar á algildri hönnun og aðgengi fyrir alla, eins og þær birtast hjá HMS og í mannvirkjalögunum og byggingarreglugerð, undirstrika að markmiðið er jafnræði í notkun mannvirkja og umhverfis. Þessu er fylgt eftir bæði á deiliskipulags- og byggingarleyfis stigi. Í byggingarreglugerð má finna ýmis ákvæði um aðgengi hreyfihamlaðra, m.a. ákvæði sem ég setti með reglugerð fyrr á árinu sem kveður á um að stæði hreyfihamlaðra skuli vera sem næst inngangi, þó aldrei meira en í 25 metra fjarlægð frá aðalinngangi bygginga. Almenn markmið um algilda hönnun og aðgengi fyrir alla leiða hönnun bæði innan dyra og utan dyra. Í byggingarreglugerð er ákvæði sem miða að því að tryggja aðgengi fyrir alla, m.a. varðandi þrepalausar gönguleiðir og merkingar, hurðir og umferðarbreidd, jöfnun hæðarmunar, merkingar og leiðbeiningar sem og sérstök viðmið um íbúðir, samkomuhús, gististaði og geymslu og bílageymslur. Við mótun flóttaleiða og rýminga er jafnframt tekið mið af kröfum um algilda hönnun.
Ég hef sett af stað vinnu við einföldun byggingarreglugerðar en við þá vinnu verður haft samráð við Öryrkjabandalag Íslands. Ég mun ekki draga úr aðgengiskröfum við þá vinnu en ég fagna öllum tillögum um úrbætur á skipulags- og mannvirkjalögum sem miða að því að bæta hag hreyfihamlaðra.
Ég vil líka taka það fram, eins og hv. þingmaður veit, að ég er þakklát fyrir að hún skuli koma hér með sitt hjarta í þennan málaflokk fatlaðs fólks sem hefur verið mitt hjartans mál og Flokks fólksins, eins og hv. þingmaður réttilega bendir á. En við erum að fara að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og það mun verða snúið ef sveitarfélög sem og aðrir ætla ekki að fylgja eftir þeim réttindum sem við erum að veita fötluðu fólki. Þau munu fylgja eftir þeim réttindum ef sveitarfélögin fylgja ekki eftir þeirri reglugerð og þeim reglum sem um þau gilda þegar kemur að nýbyggingum og aðgengi fatlaðs fólks.