157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

hagsmunir hreyfihamlaðra og skipulagsáætlanir í Reykjavík.

145. mál
[16:23]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka framsögumanni fyrir að taka þetta mál upp. Ég tek undir það að marga rak í rogastans þegar fréttir bárust af þessu, að það væri ekki bara verið að skipuleggja einstaka hús, götur eða stofnanir með þessum hætti heldur heilu hverfin í höfuðborginni. Mér fannst hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra skauta kannski aðeins fram hjá því, burt séð frá því hver ber ábyrgð á þessum tillögum og þessum hugmyndum, hvað henni sjálfri finnst um þetta, því eins og hér hefur komið fram erum við með í þinginu frumvarp um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem á að lögfesta öll réttindi. Það var síðast á fundi hv. velferðarnefndar í morgun þar sem var verið að ræða þann samning og fulltrúar fötlunarfélaga komu fram og lýstu yfir áhyggjum af bakslagi einmitt í aðgengismálum og voru að kvarta undan því að meira að segja hurð í þessu húsi sem við vinnum í væri ekki fötluðum í hag, hvað þá þegar heilu hverfin væru skipulögð með þessum hætti. Það væri fróðlegt að heyra aðeins nánar um afstöðu hæstv. ráðherra, hvort þetta séu henni vonbrigði, burt séð frá því hverjir stjórna í höfuðborginni núna. Eru það vonbrigði að svona sé staðið að málum?