157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

hagsmunir hreyfihamlaðra og skipulagsáætlanir í Reykjavík.

145. mál
[16:25]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil leyfa mér að koma hér inn með stutta athugasemd og þakka málshefjanda fyrir að vekja athygli þingheims og samfélagsins á þessu brýna máli sem er aðgengismál fatlaðs fólks. Við vitum að það er ósýnilegur þjóðfélagshópur í okkar þjóðfélagi, ekki vegna þess að þau eru fá heldur vegna þess að þau bara hreinlega komast ekki leiðar sinnar, geta ekki sótt menningarviðburði, geta ekki sótt vinnustaði. Og hvers vegna er það? Það er ekki vegna bílastæða. Það er vegna þess að húsnæði er ekki aðgengilegt fyrir þennan hóp. En ég vil enn og aftur þakka fyrir það að málshefjandi veki athygli á þessu og þetta gefur mér von um að Sjálfstæðisflokkurinn í borginni hætti þá að tala fyrir því að veittur verði afsláttur af ákvæðum um algilda hönnun sem gæti mögulega leitt til þess að húsnæði verði ekki áfram algilt og aðgengilegt líkt og við viljum öll að það sé.