157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

hagsmunir hreyfihamlaðra og skipulagsáætlanir í Reykjavík.

145. mál
[16:26]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að koma þessu máli á dagskrá. Ég bætti mér á mælendaskrá þegar ég heyrði hæstv. ráðherra tala um samning Sameinuðu þjóðanna af því að hann er til umfjöllunar í velferðarnefnd þessa dagana og við vorum m.a. með gesti í morgun í tengslum við það mál. Þar kom einmitt fram hugsanlegur kostnaður sem mun falla á sveitarfélögin til að útvega þá þjónustu sem við erum að lögfesta. Auðvitað er afar mikilvægt að við lögfestum þennan samning en hins vegar er líka mikilvægt að við tryggjum fjármuni til þeirra sveitarfélaga sem þurfa að standa undir þjónustunni og mér skilst að eftir greiningu hóps sem vann að þessu máli þá liggi kostnaðurinn fyrir. Við höfum verið að kalla eftir kostnaðarmati fyrir sveitarfélög og hæstv. ríkisstjórn hefur sagt að það sé alger óþarfi, það sé enginn aukakostnaður sem falli til vegna lögfestingarinnar en það er ljóst að það eru hátt í 13 milljarðar miðað við þessa vinnu.

Ég vil beina spurningu til hæstv. ráðherra: Er ekki mikilvægt að finna þá fjármuni til þess einmitt líka að tryggja innleiðingu þessa samnings og þar af leiðandi lögleiðingu?