157. löggjafarþing — 17. fundur,  15. okt. 2025.

hagsmunir hreyfihamlaðra og skipulagsáætlanir í Reykjavík.

145. mál
[16:27]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir mjög áhugaverða fyrirspurn. Það er mjög athyglisvert þegar hún nefnir að skipulag, t.d. hjá Reykjavíkurborg, gangi í gegnum lagaskyldu um aðgengi og ég held að það sé meira af því en við höfum bæði séð og fjallað um hér.

Mig langar að taka aðeins annan vinkil á þetta mál en það er sú mikla fækkun sem hefur orðið á bílastæðum í grónum hverfum, jafnvel þar sem þó nokkuð er af þjónustuaðilum. Langar mig t.d. að nefna lyfjabúðir, sjúkraþjálfara, læknastofur o.s.frv. Það er, ætla ég að leyfa mér að segja, næsta undarlegt að það sé ekki nokkru tauti eða rauli komið við Reykjavíkurborg varðandi það að horft sé til hagsmuna t.d. hreyfihamlaðra þegar verið er að gera breytingar á skipulagi. Ég ætla að leyfa mér að segja t.d. eins og í mínum rekstri í Reykjavíkur Apóteki að þá er götunni eiginlega breytt í það að vera nánast umferðargata með engum stæðum úr því að vera alveg ágætisþjónustugata fyrir t.d. hreyfihamlaða.