hagsmunir hreyfihamlaðra og skipulagsáætlanir í Reykjavík.
Virðulegi forseti. Mig langar til að þakka hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í umræðunni. Varðandi athugasemd hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur, þá virðist mér það vera alveg ljóst hvaða flokkur hefur tekið að sér að vera málsvari fólks með fötlun þegar kemur að skipulagsmálum.
Varðandi innkomu hæstv. ráðherra, þá þótti mér það vera ákveðin vonbrigði að hæstv. ráðherra skyldi koma hingað upp og rekja í löngu máli reglur og lög um skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu þar sem hún reyndi eftir fremsta megni að sverja af sér ábyrgð Flokks fólksins á skipulagsmálum í Reykjavíkurborg og ábyrgðina á þessu framferði gagnvart hreyfihömluðu fólki. Ég hefði frekar kosið að hæstv. ráðherra hefði varið tímanum í annað, ráðherra sem er þekkt baráttumanneskja til margra ára fyrir þennan hóp, og ég veit svo sannarlega hvar hjarta hennar liggur, hefur komið hér upp ítrekað og haldið fyrir okkur eldræður um þennan málaflokk. Ég hefði kosið að heyra þá hlið frá hæstv. ráðherra.
Ég kem hér upp því eins og baráttufólk fyrir hagsmunum fólks með hreyfihömlun hefur lýst þá hefur mætt því algjört skilnings- og áhugaleysi frá borgaryfirvöldum varðandi þessi aðgengismál. Ég batt vonir við að heyra mjög afdráttarlausar yfirlýsingar frá hæstv. ráðherra að það myndi ekki gerast á hennar vakt, sem hefur mjög víðtæk völd núna, ekki bara í þinginu heldur líka í Reykjavíkurborg, að svona yrði gengið fram gagnvart fólki með hreyfihömlun eins og hagsmunafulltrúar þeirra hafa lýst.