ferðakostnaður sjúklinga.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir fyrirspurnina. Varðandi svarið við fyrstu spurningu, hvort ráðherra hafi látið kanna hvort reglur um endurgreiðslu taki til þess þegar læknistími fellur niður, þá er því til að svara að upplýsinga um þetta var aflað frá Sjúkratryggingum Íslands. Ef tími hjá lækni fellur skyndilega niður hafa Sjúkratryggingar endurgreitt útlagðan kostnað vegna fyrirhugaðrar ferðar fáist hann ekki endurgreiddur eftir öðrum leiðum. Slík mál koma upp í örfá skipti á ári og Sjúkratryggingar leitast eftir að leysa þau þannig að sjúklingur sitji ekki uppi með kostnað.
Varðandi spurningu númer tvö, hvort ráðherra hafi látið kanna hversu algengt þetta er, þá hefur það ekki verið kannað hjá þjónustuveitendum ef sú er spurningin, enda er réttur til endurgreiðslu tryggður við þessar aðstæður að mati Sjúkratrygginga. Hins vegar fengum við þau svör frá Sjúkratryggingum að erindi sem berast Sjúkratryggingum eru færri en tíu á hverju ári er lúta að akkúrat þessu. Það má alveg leiða líkur að því að tilvikin séu ekki fleiri en raun ber vitni því að líklegt er bæði að fólk sem ferðast um langan veg kanni fyrir fram hvort tíminn haldi og eins getur maður ætlað að þjónustuveitendur leggi sig meira fram þegar fólk hefur ferðast um langan veg. Sjúkratryggingar hafa því ekki fengið erindi vegna þess að fólk sem ekki hefur farið í ferð hafi setið uppi með greiðslu fargjalds.
Loks spurði þingmaðurinn hvort ráðherra hygðist ráðast í heildarendurskoðun á endurgreiðslu ferðakostnaðar sjúklinga og því er til að svara að reglugerð um ferðakostnað tryggir ríkt aðgengi að heilbrigðisþjónustu sem ekki er veitt í heimabyggð. Sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði fyrir fjórar langar ferðir, þ.e. ferðir lengri en 20 km, á ári til að sækja sjúkdómsmeðferð utan heimabyggðar og þá er tekinn þáttur í fleiri ferðum vegna alvarlegra sjúkdóma. Til alvarlegra sjúkdóma teljast svo sem illkynja sjúkdómar, nýrnabilun, alvarlegir hjartasjúkdómar, alvarlegir sjúkdómar barna, alvarlegar geðraskanir og einnig tæknifrjóvgunarmeðferðir og tannlækningar. Sjúklingur greiðir að hámarki 1.500 kr. vegna ferðar en fari greiðsluþátttaka yfir 10.000 kr. á almanaksári þá greiðir hann 500 kr. á hverja ferð út tímabilið. Þannig er aðgengi ágætlega tryggt.
Sé um að ræða áætlunarferðir endurgreiða Sjúkratryggingar fargjald fylgdarmanns ef sjúkratryggðir eru yngri en 18 ára eða ef ekki er færi á að ferðast á eigin vegum. Þannig hafa engin mál borist ráðuneytinu síðustu misserin sem kalla á heildarendurskoðun á reglugerðinni. Hún er tekin til endurskoðunar eftir þörfum. Þannig hafa borist erindi er varða ferðakostnað sjúkratryggðra, eitt á vakt þeirrar sem hér stendur, og það var hægt að koma til móts við það með breytingum á reglugerðinni. Mér er sagt og ég hef heyrt það úr fleiri áttum að Sjúkratryggingar leggi sig fram um að vera liðlegar í þessu samhengi.