ferðakostnaður sjúklinga.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég veit það og ég held að við vitum það öll að það eru allir að reyna að gera sitt besta. Maður veltir því fyrir sér, fyrst þetta er fyrirkomulagið, hvort það hreinlega þurfi ekki að upplýsa betur einstaklinga og jafnvel heilbrigðisstofnanir um hvaða leiðir fólk getur farið í kerfinu til þess einmitt að geta fengið endurgreiðslu. Það er eins og fólki sé ekki leiðbeint því það eru örugglega fleiri en tíu sem hafa skrifað mér og komið að máli við mig í tengslum við svona. En mjög gott að það sé verið að mæta þessu og sjúkratryggingar taki þá við boltanum í þessum sérstöku tilfellum.
Í ljósi svars hæstv. ráðherra hvað varðar heildarendurskoðun á endurgreiðslu ferðakostnaðar þá eru nú fleiri atriði líka sem þarf að huga að, t.d. varðandi flugfargjöld. Þegar einstaklingur er að sækja þjónustu erlendis þá veit ég að hann getur keypt flugmiða í gegnum Icelandair og þarf ekki að leggja út fyrir kostnaðinum. En þegar t.d. einstaklingar af landsbyggðinni eru með barn sem er langveikt og skráð sem slíkt og þurfa jafnvel að fara fjórum til fimm sinnum í mánuði til Reykjavíkur með barnið sitt og leggja út fyrir kostnaði fyrir flugi, þá geta það verið alveg töluverðar upphæðir og þau þurfa að leggja út fyrir þeim kostnaði. Það er ekki sama fyrirkomulag varðandi endurgreiðslur þegar þú ert að fara erlendis til að sækja þjónustu og innan lands og það væri því tilefni til þess einmitt að fara að endurskoða þetta. Ég veit að fjölskyldur með langveik börn, sem hefur áhrif á tekjur þeirra, eru jafnvel að fá lánað kreditkort frá foreldrum sínum til að geta staðið undir kostnaði í tengslum við þessi flug því að það tekur oft tíma líka að fá endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands.
Ég spyr því hæstv. ráðherra hvort hún sjái tilefni til þess að samræma eitthvað þessar vinnureglur varðandi kostnaðarþætti og eins líka varðandi gistikostnað fyrir fólk sem þarf að sækja hér heilbrigðisþjónustu. Við getum tekið dæmi um fjölskyldu frá Djúpavogi með veikt barn sem er að keyra ítrekað eða fljúga til Reykjavíkur. Eldri borgari á Akureyri sem þarf að hefja ferðalag fyrir dögun til að mæta í einhverja blóðskilun, kona í áhættumeðgöngu á Vestfjörðum sem getur einungis fengið þjónustu í höfuðborginni og einstaklingur með krabbamein sem þarf geislameðferð stendur frammi fyrir því að þurfa að greiða fyrir mánaðarlanga dvöl í borginni. Það er eitt að koma til móts við ferðakostnaðinn en það er annað að koma til móts við gistingu og annað. Hvort hæstv. ráðherra sjái tilefni til að skoða þetta aðeins betur til þess að við getum mætt fólki betur á landsbyggðinni, því eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að bjóða upp á alla heilbrigðisþjónustu um allt land. Það er viss sérhæfing sem á sér stað og aðstæður sem eru eingöngu hér í höfuðborginni og það er mikilvægt að við tryggjum réttindi allra til að sækja sér heilbrigðisþjónustu.