157. löggjafarþing — 18. fundur,  15. okt. 2025.

stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.

105. mál
[19:22]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla nú að byrja á því að þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir framsögu í þessu nefndaráliti og jafnframt að lýsa því yfir að það er ekki ágreiningur á milli fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar í þessu máli þannig að í sjálfu sér hefðum við í raun getað verið á þessu nefndaráliti hvað það varðar. Ég ætla svo sem ekki að fara að endurtaka það sem hv. þingmaður ræddi hér áðan um hvaða breytingar eru helstar. Ég ætla hins vegar að halda því til haga og er hingað kominn til þess að segja að við erum í grunninn mjög óánægð með þá niðurstöðu að það hafi verið ákveðið að færa húsnæðis- og skipulagsmál yfir til félags- og húsnæðismálaráðherra. Ég held að það hafi bara sýnt sig strax á síðasta þingi að það hefði kannski átt að hugsa það mál með aðeins öðrum hætti heldur en raun ber vitni. En að öðru leyti tel ég að nefndin hafi unnið vel að þessu máli og í sjálfu sér í litlum ágreiningi, ef nokkrum, þannig að ég á von á því að þetta mál verði samþykkt hér.