157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

aðgerðir stjórnvalda vegna biðlista barna eftir greiningu og meðferð.

[10:31]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Í aðsendri grein á Vísi í síðustu viku skrifaði móðir einhverfs barns um velferð í orði en ekki á borði. Nýjustu tölur umboðsmanns barna sýna 717 börn á bið hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð en 674 hafa beðið lengur en þrjá mánuði, bið mælst oft í tvö til þrjú ár og ferlið getur tekið allt að fjögur ár. Lög um farsæld barna, barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, samningur um réttindi fatlaðs fólks, mannréttindasáttmáli Evrópu og lög um sjúkratryggingar kveða á um snemmtækan og aðgengilegan stuðning. Staðan stenst því hvorki anda né bókstaf laganna. Foreldrar lifa í svartholi biðlistanna. Börn missa dýrmætan tíma, vandinn vex og kostnaður framtíðar eykst. Talmeinaþjónusta er víða óaðgengileg og ég veit til þess að í sumum tilfellum er uppgefinn biðtími eftir tíma hjá talmeinafræðingi 38 mánuðir. Bið eftir geðheilbrigðisþjónustu barna mælist í mánuðum og árum og sálfræðiþjónusta á heilsugæslu er víða ótrygg. Þetta er ekki velferð á borði.

Ég spyr því hæstv. heilbrigðisráðherra: Hverjar verða aðgerðir næstu 12 mánuði til að tryggja að hámarki 90 daga bið eftir greiningu eða stuðningi, einnig án formlegrar greiningar samkvæmt farsældarlögum? Hvaða vinna fer nú fram í ráðuneytinu til að tryggja fjármögnun úrræða og hvernig verður samhæfingu skóla og heilsugæslu háttað? Hvað þarf að koma til til þess að ráðherrann horfi í auknum mæli til einkaframtaksins til þess að ná þessum markmiðum?