157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

starfsemi Vélfags.

[10:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég æski þess að hæstv. utanríkisráðherra upplýsi þingið hér og nú um hvort til standi af hálfu hæstv. ráðherra að kæfa fyrirtækið Vélfag á Akureyri, Ólafsfirði. Hátæknifyrirtæki sem skapar fjölda starfa í þessum samfélögum og er mikilvægt í verðmætasköpun á Íslandi, tækni á Íslandi, en verður fyrir stöðugum hindrunum núna, m.a. af hálfu hæstv. utanríkisráðherra. Ekki er útséð með það að fyrirtækið geti haldið áfram rekstri við þessar aðstæður. Að minnsta kosti hlýtur hæstv. ráðherra að þurfa að gefa ástæður fyrir því standi til að þrengja áfram að þessu fyrirtæki og jafnvel þvinga það úr rekstri. En fram að þessu, að því er mér skilst úr fjölmiðlum, hefur hæstv. ráðherra ekki einu sinni verið tilbúinn til að hitta fulltrúa þessa fyrirtækis til að fá frá þeim skýringar og ekki veitt fulltrúum fyrirtækisins neinar skýringar heldur.

Það er ekki hægt, frú forseti, að láta þá sem eru að reyna að reka hér gott og öflugt fyrirtæki, mikilvægt í sinni byggð, búa við slíka óvissu. Þess vegna fer ég fram á að hæstv. utanríkisráðherra geri þinginu grein fyrir því hvert er stefnt í þessu máli og hvort hæstv. ráðherra muni þiggja upplýsingar frá fulltrúum fyrirtækisins og veita þeim upplýsingar. Því eins og málið horfir við þá er þarna um að ræða fyrirtæki í eigu Íslendinga að nokkru leyti, stofnendur fyrirtækisins, en einnig aðila frá Liechtenstein og svo svissnesks ríkisborgara sem mun hafa keypt fyrirtækið af norskum ríkisborgara. Allt eru þetta EFTA-lönd og EES-lönd og þess vegna þarf hæstv. ráðherra að vanda sig vel við afgreiðslu þessa máls.