starfsemi Vélfags .
Frú forseti. Þetta er ekki tækt svar. Hæstv. ráðherra segist ekki vilja tjá sig um málið en dylgjar engu að síður ítrekað um að hér sé um að ræða fyrirtæki sem sé á einhvern hátt að brjóta alþjóðareglur og þvingunaraðgerðir. Ef hæstv. ráðherra telur að sú sé raunin þarf hæstv. ráðherra einfaldlega að segja það og færa rök fyrir því. Það þýðir ekki að neita að gefa upplýsingar og beita svo dylgjum og vísa í stríðið í Úkraínu. Hvað kemur það þessu máli við ef þetta fyrirtæki er ekki að brjóta neinar reglur er varða Rússland? Hvers vegna þá að grípa slíkt úr lausu lofti? Hæstv. ráðherra hefur mjög gaman af því að gleðja útlendinga og miðað við þessi svör hæstv. ráðherra hlýtur maður að fara að óttast að tilgangurinn með þessari aðför, eða við skulum segja meðferð á þessu íslenska fyrirtæki á Akureyri, sé sá að finna bara einhvern til að geta sagt: Sjáið þið hvað ég er að gera. Ég er líka að passa upp á þetta hér á litla Íslandi. Rétt eins og hæstv. fjármálaráðherra, með sinn svefnhóp til að fjalla um kísilverið á Bakka, sem hefur engu skilað, virðist hæstv. utanríkisráðherra ekki vera að skila neinu í þessu máli fyrr en það er of seint að bregðast við.