157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjárframlög til Ljóssins og gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta.

[10:55]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka eindregið undir með hv. þingmanni um mikilvægi Ljóssins og starfsemi þess. Það eru ótrúlega mikil verðmæti sem eru þar unnin í því starfsfólki og þeirri starfsemi. Við sem eigum aðstandendur — það eru akkúrat þrjú ár í dag síðan Kaja systir fór. Svo á maður vinkonur sem eru þar. Þannig að mér finnst mjög mikilvægt að heilbrigðisráðherra skyldi undirstrika það hér áðan að það verði passað upp á Ljósið, af því að við vitum alveg út á hvað sú starfsemi gengur. Hún skiptir máli fyrir fólkið sem leitar þangað, hún skiptir máli fyrir aðstandendur og alla þá sem standa frammi fyrir því að berjast við þessa miklu meinsemd.

Ég vil líka þakka hv. þingmanni það að hafa nefnt sálfræðiþjónustuna. Það er okkar hjartans mál í Viðreisn, það er alveg rétt. Það er líka alveg ljóst að það mál fer á dagskrá. Það er ekki byrjað að setja inn í það en það mál verður klárað á kjörtímabilinu. Ég hef áður lýst því yfir hér úr þessum stól að það verður klárað á kjörtímabilinu. Ég ætla ekkert að dylja það að auðvitað myndi ég vilja sjá í forgangsröðun að þessu yrði ýtt framar. En stóra verkefnið okkar í ríkisstjórninni og það stóra verkefni sem m.a. fjármálaráðherra og forsætisráðherra og við öll í ríkisstjórninni stöndum frammi fyrir er að ná tökum á rekstri ríkissjóðs. Það er mesta forgangsverkefnið núna. Það er fyrir heimilin, fyrir fyrirtækin, fyrir samkeppnishæfni atvinnulífsins. Það er upp á lífsgæði til skemmri en líka lengri tíma. Sálfræðiþjónustan verður afgreidd á þessu kjörtímabili. Það liggur alveg fyrir.

En ég vil líka draga fram að það er svo margt engu að síður sem er verið að fjárfesta í. Mig langar að geta þess að til viðbótar eru 3 milljarðar í Sjúkrahúsið á Akureyri, 2,3 milljarðar í styrkingu á heilsugæslu, einkum á landsbyggðinni. Við skulum muna það að strax í sumar voru allar meðferðarstöðvar opnar. Það er verið að gera mjög marga hluti. Getum við gert allt í einu? (Forseti hringir.) Nei, við verðum bara að horfast í augu við það að það getum við ekki gert. En það eru markmið, hvort sem er með sálfræðiþjónustuna eða aðra mikilvæga starfsemi, að tryggja það að (Forseti hringir.) sá ferill fari af stað á þessu kjörtímabili.