fjárframlög til Ljóssins og gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta.
Virðulegi forseti. Ég held að það skipti mjög miklu máli að við höldum aga á þessu öllu saman og við virðum stöðugleikaregluna. Ég held að það skipti mjög miklu máli. Og hún er strax orðin aðhaldstæki. Það þýðir að við þurfum að forgangsraða. Ramminn er ekki eins stór en það eru samt ákveðin mál. Aftur ítreka ég að ég treysti því að við munum taka sérstaklega utan um verkefni eins og Ljósið.
Það sem ég vil hins vegar vara við, og ég segi þetta svolítið af þeirri reynslu sem ég fékk sem menntamálaráðherra á sínum tíma, 2004–2009, að þegar ég gerði m.a. samninga um menningarhús á landsbyggðinni, gerði samninga við kvikmyndagerðarfólk þannig að það hækkaði verulega, þá fékk ég strax: Bíddu, hvað eru þið að setja í þessi verkefni? Af hverju eruð ekki að setja frekar í biðlistana á BUGL? Réttmætar spurningar. En ég vil ekki nálgast hlutverkið þannig að við etjum hópum saman og mér finnst það vond tilhneiging hjá ábyrgum stjórnmálaöflum, (Forseti hringir.) ef það á að fara að vera tilhneigingin í íslenskri pólitík, að egna viðkvæmum hópum saman. Við hér inni þurfum að vera burðug til þess og þess megnug að geta tekið utan um (Forseti hringir.) þessa hópa og tala skýrt, alveg rétt, bæði varðandi forgangsröðun og fleira. En setjum ekki menningu á móti uppbyggingu á landsbyggðinni eða innviðum eða íþróttaframlög á móti einhverju öðru. Ekki fara þangað. (Forseti hringir.) Ég treysti því að eiga gott samstarf, m.a. við Sjálfstæðisflokkinn, um þessi mikilvægu mál. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hæstv. ráðherra á ræðutímann.)