endurbætur á flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli.
Frú forseti. Eins og alþekkt er er flugstöð Reykjavíkurflugvallar löngu orðin barn síns tíma. Þessi flugstöð er þó lykillinn að tengingunni við landsbyggðina og hvort sem um er að ræða áætlunarflug til Akureyrar, Egilsstaða, Ísafjarðar eða til fleiri minni flugvalla á landsbyggðinni þá er hér einnig verið að tala um sjúkraflug sem fer fram dag og nótt. Flugvöllurinn er einnig mikilvægur varaflugvöllur og flugvöllurinn er lífæð þeirrar ferðaþjónustu sem gengur hér þvert á alla landshluta. Flugstöðin er lítil og aðstaðan er ekki boðleg miðað við þann fjölda farþega sem þar fer um. Rétt um 400.000 farþegar fara um flugvöllinn á hverju ári.
Áform voru uppi um uppbyggingu flugstöðvarinnar fyrir nokkru en enn er óljóst hver staða mála er nú. Það er því mjög áhugavert að velta því fyrir sér sem snýr að varaflugvallargjaldinu og blandaðri fjármögnun sömuleiðis, hvernig við getum horft til þess. Við erum með glæsilega flugstöð á Akureyri, nýja glæsilega flugstöð, og mjög góða flugstöð á Egilsstöðum sömuleiðis sem þjónar sínum tilgangi mjög vel.
Ég vil því spyrja hæstv. innviðaráðherra: Hvað líður endurbótum á flugstöðinni í Reykjavík? Hver er staða málsins? Er von til þess að framkvæmdir hefjist á þessu kjörtímabili?