endurbætur á flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Já, það er rétt að flugstöðin í höfuðborginni er ekki boðleg. Flugstöðin er frá 1946 og er lítil og svo sannarlega komin til ára sinna. Við erum að skoða sviðsmyndir varðandi flugstöðina. Verði hún reist fyrir beint ríkisframlag mun hún taka talsvert rými í fjárlagaramma sem er til reiðu til flugvalla. Því er verið að skoða fýsileika annarra leiða við fjármögnun og þá aukna aðkomu einkaaðila. Ég átti góðan fund með fyrirsvarsmanni Icelandair um þetta mál og embættismönnum hjá mér. Við erum að skoða hvort það gæti komið í samgönguáætlun sem lýtur að flugstöð í Reykjavík. Ég tel að þetta sé mikilvægt atriði og líka það að styrkja Reykjavíkurflugvöll í sessi. Á meðan Reykjavíkurflugvöllur er hér í Vatnsmýrinni, sem ég vona að hann verði um ókomna framtíð, er mikilvægt að aðkoma farþega um flugvöllinn sé þá mannsæmandi. Ég tel að það séu mikil tækifæri fyrir aukna notkun erlendra ferðamanna á innanlandsflugvallakerfinu, gríðarlega mikil tækifæri hvað það varðar.