157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

endurbætur á flugstöðinni á Reykjavíkurflugvelli.

[11:06]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni enn og aftur fyrir fyrirspurnina. Icelandair á enn sem komið er flugstöðina sem er núna í notkun og ýmis hús við hana, ríkið á lóð þarna rétt hjá. Ég minni á að þessi flugstöð, ef ég fer rétt með, var byggð 1946 og þá verður hún áttræð á næsta ári. Þetta er komið eiginlega í húsfriðunarflokk og í hvert einasta skipti sem ég fer þarna í gegn er ég hissa á því að það sé ekki löngu, löngu komin ný flugstöð þarna. Það er spurning um fýsileika við fjármögnun, hvort einkaaðilar geti komið þar að. Það er ekki eins og á Keflavíkurflugvelli þar sem er hægt að hafa margar verslanir eða tekjuaflandi svið þarna. En ég tel að það sé mikilvægt að drífa þetta mál áfram og ég vonast til að við getum komið með einhverja skýra sýn í næstu samgönguáætlun. Ég tel að þetta verði mjög líklega reist fyrir ríkisframlag, fyrst og fremst, út af bara notkuninni, en þá er það spurning um forgangsröðun fjármagns til flugvalla í landinu.