fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Já, hún er vond og slæm staðan á fjölmiðlamarkaði og hefur verið lengi þannig að grundvallarverkefnið er að styrkja almennt rekstrarumhverfi fjölmiðlanna í landinu. Því hef ég sýnt því skilning, þótt ég hafi aldrei getað greitt því atkvæði, að fjölmiðlar séu styrktir. Það bara getur ekki verið að stjórnvöld séu að deila út fjármunum til fjölmiðla. Því mun ég sitja hjá en ég skil nauðsyn þess að hjálpa sérstaklega minni fjölmiðlunum. En mér finnst það sérstaklega vont núna þegar ríkisstjórnin ætlar að fara að hreyfa við styrkjunum eftir frammistöðu fjölmiðla, sem hún kallar falsfréttamiðla og annað slíkt, í kjölfarið á því að það koma slæmar fréttir af þessari ríkisstjórn, þá er þetta leiðin. Sama ríkisstjórn og segir upp lögreglustjóra af pólitískum ástæðum. Þetta getur ekki gengið. Þetta er slæmt mál og þetta er vondur dagur fyrir lýðræðið að þetta sé að fara svona í gegn.