157. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2025.

fjölmiðlar.

49. mál
[11:14]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það skýtur skökku við að þegar hér er talað um tímabundna framlengingu meðan verið sé að endurskoða fjölmiðlaumhverfið í heild eigi í raun að halda þessu óbreyttu nema að lækka framlög til þeirra fjölmiðla sem reyna þó að standa uppi í hárinu á Ríkisútvarpinu. Það skýtur skökku við í ljósi þeirra ummæla sem hafa verið látin falla af stjórnarliðum um þau fyrirtæki. Ég verð að segja það, virðulegur forseti, að ég er ekki mjög bjartsýnn fyrir hönd einkarekinna fjölmiðla í landinu af því að nú er verið að boða streymisveitnaskatt á alla einkarekna fjölmiðla, alla fjölmiðla nema Ríkisútvarpið. Og hvað heitir þessi streymisveitnaskattur? Jú, hann heitir ekki skattur, í nýyrðasmíði ríkisstjórnarinnar heitir hann menningarframlag. Menningarframlag — einkareknir fjölmiðlar í landinu ættu því ekki að vera (Forseti hringir.) mjög vongóðir um það hver framvindan verður í endurskoðun á umhverfi fjölmiðla á Íslandi.