fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Við erum ekki að taka á rót vandans því að það hlýtur að vera vandi þegar ríkið hefur aldrei áður verið jafn sterkt á fjölmiðlamarkaði og núna, aldrei áður. Það var ekki jafn sterkt þegar það var bannað að vera með frjálst útvarp og sjónvarp. Þannig er málum fyrir komið, virðulegi forseti, að ef eitthvað hræðilegt gerist á Íslandi, og guð gefi að það verði ekki, þá er ein stofnun sem er algerlega tryggð fjárhagslega. Það er ekki Landspítalinn, það er ekki Landhelgisgæslan, það er ekki lögreglan, það er Ríkisútvarpið. Það er ekki tekið á þessu máli.
Það verður líka að segjast, virðulegi forseti, að hæstv. ríkisstjórn hefur ekkert farið í felur með það að henni er illa við alls konar fólk og fyrirtæki og hatur hennar er mjög skýrt. Um daginn kallaði hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) hina merku stofnun Ljósið bara einhver samtök úti í bæ. Við erum að tala um það að hér hafa verið settir skattar til að ná sér niður á einhverju fólki. (Forseti hringir.) Það lítur illa út, virðulegi forseti, að fjölmiðlar sem stunda gagnrýni séu sérstaklega teknir fyrir. En þetta er verk þessarar ríkisstjórnar.