stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála.
Frú forseti. Þingflokkur Miðflokksins mun sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu. Þetta er mál sem er svona sniðið að því að ná utan um hringlandann sem var uppi við þegar þessi ríkisstjórn var skrúfuð saman og það bætir jafnvel í þegar verið er að gefa upp boltann með það að nú verði orðið einfaldara að hringla með þessa hluti hér eftir á þegar ríkisstjórnin hefur verið skrúfuð saman. Mér finnst um þetta eins og svo margt annað að það vantar algjöra festu í nálgun núverandi stjórnvalda á Stjórnarráðið. En það sem er kannski alvarlegast er hringlið með málaflokka. Nú er verið að færa húsnæðismálin yfir til félags- og húsnæðismálaráðherra úr innviðaráðuneytinu. Mér segir svo hugur að þessari ákvörðun verði snúið við strax að afloknum næstu kosningum. Þetta er ekki gott fyrir málaflokk sem er á jafn vondum stað og staðan er núna. Rökin um að félagslegi hluti húsnæðiskerfisins eigi svo vel heima hjá hæstv. félagsmálaráðherra eru ekki sterk í ljósi þess að það er auðvitað mjög lítill hluti í raun húsnæðis á Íslandi sem er félagslegt og þeirrar uppbyggingar sem þarf að eiga sér stað sem er félagsleg. Ég held því að þetta sé á misskilningi byggt, sú nálgun sem hér er viðhöfð og við í þingflokki Miðflokksins munum sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.