málefni Ljóssins.
Frú forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnum hér rétt áðan þá spurði hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir hæstv. heilbrigðisráðherra varðandi málefni Ljóssins. Það er svolítið villandi frétt komin á RÚV varðandi málið þar sem fyrirsögnin er: Ljósið gæti fengið viðbótarfjármagn. Það kemur fram í fréttinni að það hafi náðst samningar á milli Ljóssins og heilbrigðisráðuneytisins en það virðist bara vera á þeirri forsendu, sem fjárlaganefnd samþykkti og kom í fjárlögin í fyrra og var samþykkt hér um miðjan nóvember í fyrra fyrir kosningar, að það færu 195 milljónir til Ljóssins. Nú er loksins búið að semja, virðist vera, um þann pening út þetta ár. En það er ekkert um framhaldið. Það er orðað í fréttinni með þeim hætti að þá sé hægt að skoða framhaldið. Það er rosalega mikilvægt í þessu máli sem varðar málefni Ljóssins, svona stórt mál. Fréttaflutningurinn hjá RÚV í þessu máli er greinilega mjög villandi miðað við umræðuna og þar er mikilvægt að það komi skýrt fram hvað hæstv. heilbrigðisráðherra ætlar sér að gera varðandi málefni Ljóssins sem eru í algjöru öngstræti eftir að þjónustusamningurinn rann út 2023, (Forseti hringir.) sem var gerður 2020 og fjárlaganefnd og sá sem hér stendur sem formaður fjárlaganefndar komu inn í með 195 millj. kr. (Forseti hringir.) fjárframlagi í fyrra.
Það þarf að þarf að fá miklu skýrari mynd og þess vegna hef ég óskað eftir því við hæstv. ráðherra að það komi skýrar fram: Hvað á að (Forseti hringir.) gera í málefnum Ljóssins nú í sambandi við þetta mál? Þetta er mjög villandi frétt á RÚV núna.
(Forseti (ÞSv): Forseti telur þetta umræðuefni í engu heyra undir liðinn fundarstjórn forseta.)