157. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2025.

málefni Ljóssins.

[11:48]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Nú hef ég ekki lesið þessa frétt enda setið hér á þingfundi. Eins og ég sagði og hef margoft tekið fram hér hafa staðið yfir samningar milli Sjúkratrygginga, sem jú semja um kaup á heilbrigðisþjónustu, og Ljóssins. Þar hefur borið töluvert á milli. Ég hitti báða aðila fyrir einni til tveimur vikum og þá voru samningsaðilar farnir að nálgast og síðan er búið að loka þessu ári. Auðvitað var ekki hægt að koma inn með nýtt fjármagn í Ljósið fyrr en það lægi fyrir. Þannig að nú liggur fyrir viðræðuáætlun um samninga næsta árs. Auðvitað felst verkefnið í því að skilgreina betur endurhæfingu og semja til lengri tíma í hvert sinn. Það sem mér hefur mislíkað er að fyrri heilbrigðisráðherrar hafa ekki sótt það að raunaukning yrði í fjárframlögum til endurhæfingar. Núna sætir endurhæfing því bæði aðhaldi og fær ekki raunaukningu. (Forseti hringir.) Það er svo sannarlega verkefni þeirrar sem hér stendur að úr verði bætt. Það er ekki komin niðurstaða í Ljósið en það er unnið að málum.