157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

vörugjald á bifreiðar.

[15:19]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það vöknuðu upp margar spurningar við tilkynningu sem birtist á vef fjármálaráðuneytisins á föstudaginn núna fyrir helgi og varðar vörugjald á bifreiðar. Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort það sé rétt skilið hjá mér að af þessari tilkynningu megi ráða að hæstv. fjármálaráðherra ætlist til þess að hv. efnahags- og viðskiptanefnd gerir breytingar á bandorminum sem er til umfjöllunar í hv. efnahags- og viðskiptanefnd, breytingar sem munu lúta að 7–8 milljarða kr. skattahækkun í formi hækkunar á vörugjöldum á þorra bifreiða sem seldar eru hér.

Það var kynnt að vörugjald á raf-, metan- og vetnisbíla myndi falla niður og að lækkaður yrði styrkurinn til að kaupa þessar bifreiðar, en hann ekki afnuminn, og það kynnt að vörugjald á önnur ökutæki myndu hins vegar hækka stórkostlega, úr 13% í 20% og 30% í 40%, og að losunarviðmið útblásturs yrðu hert. Þessi áform eru kynnt sem loftslagsaðgerð.

Fyrir stuttu sagðist hæstv. fjármálaráðherra í samræðum hér við mig vera sammála ábatagreiningu Hagfræðistofnunar um aðgerðir í loftslagsmálum sem leiddi í ljós að styrkir til rafbílakaupenda væru ein allra versta loftslagsaðgerðin af mörgum lélegum og þess vegna hlýt ég að spyrja: Hvers vegna stendur hæstv. fjármálaráðherra ekki við það sjónarmið sitt og fellir þá niður styrki til rafbílakaupenda? Og af hverju gerir hæstv. fjármálaráðherra ekki þetta kerfi allt saman hlutlaust gagnvart neytendum? Hvers vegna eru yfir höfuð vörugjöld, mætti spyrja? Nógu háir eru eldsneytisskattarnir. Eða er hér verið að hrinda í framkvæmd stefnu Samfylkingarinnar og Viðreisnar um að banna bifreiðar sem knúnar eru með bensíni og dísil?