157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

vörugjald á bifreiðar.

[15:23]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er í hæsta máta óeðlilegt að hæstv. ráðherrar falist eftir því við hv. nefndir að þær komi með svo umfangsmiklar breytingar á eigin lagafrumvörpum að þær nemi milljörðum og er þess utan kerfisbreyting. Það fer afar illa á því að hæstv. fjármálaráðherra heykist á því að koma sjálfur með frumvarp um þetta mál, taki hér umræðu um það í framsögu og það fái þinglega meðferð eins og svona mál eiga skilið og full þörf er á í þessu tilviki. Það er gert ráð fyrir að áfram sé verið að styrkja og neyslustýra neytendum í þágu rafbíla. Hitt er svo augljóst, ef ég skil hæstv. ráðherra rétt, að hér er verið að hrinda í framkvæmd yfirlýstri stefnu Viðreisnar sem hefur meira að segja ályktað um það á sínu landsþingi að nýskráningu á bensín- og dísilbílum verði hætt árið 2025. Er þetta raunhæft? (Forseti hringir.) Telur hæstv. ráðherra raunverulega raunhæft að banna bensín- og dísilbíla á þessum tímapunkti og með þessari aðgerð sem verið er að gera hér?