157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

aðgerðir vegna fíkni- og geðvanda barna.

[15:36]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vil bara endurtaka það að ég skil ofboðslega vel það fólk sem er í þessum vanda með börnin sín. Ég hef kallað fólk inn í ráðuneytin til að tala við það einmitt út af þessum vanda og ég er að bregðast við því. En að fara að hlaupa í einhverjar bráðabirgðalausnir erlendis — ég er ekki að skoða það. Ég tel mig vera að ganga frá því þannig hér heima og einbeita mér að því hvað er hægt að gera þannig að við komumst á þann stað að við getum sagt að við séum þá alla vega á réttri leið. Það er númer eitt, tvö og þrjú að koma á starfsemi í Gunnarsholti og það er á lokametrunum. Við erum að tala um bara innan við einn, tvo mánuði. Það er það sem við erum að gera. Ég veit að þessi svör duga kannski ekki öllum, sérstaklega ekki þeim sem hafa misst trúna á þetta kerfi. En við verðum að snúa þessari þróun við svo að fólk telji sig ekki þurfa að leita til útlanda eftir þessari þjónustu. Það er það sem ég er að reyna að gera, einbeita mér að númer eitt, tvö og þrjú. Það er auðvitað sárara en tárum taki, sú aðstaða að fólk þurfi að fara erlendis með börnin sín til meðferðar og mér finnst það ofboðslega leitt. En þau hafa þennan rétt og eru að nýta hann. Það er þeirra ákvörðun og ég skil þau vel. Það eina sem ég get gert í stöðunni er að koma hlutunum í lag hér innan lands og það er það sem ég er að einbeita mér að númer eitt, tvö og þrjú. Við erum á réttri leið. Það er í alvöru þannig. En við þurfum samt að spýta virkilega í til að ná Gunnarsholti inn og ég, eins og ég segi, er jafnvel að vonast til að við getum tekið það í notkun að hluta til, sem ég er búinn að vera að skoða, til þess einmitt að vera tilbúin og geta hjálpað þessum börnum.