157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

aðgerðir vegna fíkni- og geðvanda barna.

[15:38]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Þetta er mjög sérstakt. Það eina sem hæstv. ráðherra segist geta gert er að reyna að bjarga einhverju hér innan lands. Hugsum okkur, ef við snúum þessu við, að það sé einhver með lífshættulegan sjúkdóm á Íslandi. Það eru engin úrræði til við honum. Það er til úrræði í Svíþjóð og hæstv. heilbrigðisráðherra segir: Nei, við höldum honum hérna. Það er bara dagaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist en við ætlum bara að horfa inn á við. Það er það eina sem ég get gert sem ráðherra. Að láta þetta út úr sér í pontu Alþingis, að láta fólk, foreldra sem eiga börn í þessari stöðu heyra þetta — ég veit ekki alveg hvert við erum komin á Alþingi fyrst staðan er þessi. Það er í lögum um sjúkratryggingar að það er hægt að fara erlendis ef það er ekki í boði þjónusta eða ef það er ekki tími fyrir hana hér.

Þetta er mér hjartans mál og þetta er hjartans mál öllum þeim foreldrum sem eru úti um land allt, sem eru miklu fleiri en koma fram í fjölmiðlum, miklu fleiri. Að þetta skuli ráðherra bera á borð fyrir þjóðina í pontu Alþingis er gjörsamlega óþolandi. Ég spyr því ráðherra: Það er hægt að bregðast við einstaka tilfellum einn, tveir og þrír með því að senda fólk erlendis og í Covid var hægt að búa til sérhæfða og (Forseti hringir.) sértæka sjúkrastofu á 10–12 dögum. Hvers vegna er það ekki hægt í þessum málaflokki?