157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

aðgerðir vegna fíkni- og geðvanda barna.

[15:39]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Við verðum einfaldlega að fara að lögum og reglum. Það er það sem ég er að gera. Ég skil þennan vanda og ég verð að segja alveg eins og er að okkur ber skylda til að gera allt sem við getum hér innan lands til þess að hjálpa þessum börnum. Það er það sem ég er að gera. Að bera þetta saman við það að einhver fari til Svíþjóðar í læknismeðferð, það er bara allt annar hlutur. Það er búið að reyna það margoft en þessi úrræði hafa ekki verið reynd. Ég skil það óskaplega vel og ég mun alltaf skilja það að fólk geri allt sem það getur til að hjálpa börnunum sínum og koma þeim út úr þessum vanda. Þess vegna er ég að einbeita mér að því að þau geti fengið þessi úrræði hér heima. Það er það sem ég er að einbeita mér að. Eins og ég segi: Við erum að ná Gunnarsholti, þar sem við getum tekið við átta drengjum í langtímaúrræði, inn innan tveggja mánaða. Við erum þegar komin með Skálatúnið í Mosfellsbæ og við erum þar af leiðandi með laust pláss á Stuðlum. Við munum taka Stuðla í gegn og þá verða 13 öryggisrými til.