157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

staða verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi.

[15:54]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir ágæta umræðu. Það er að mörgu að huga í þessari umræðu. Ég tek að vissu leyti undir með hv. þm. Jóni Pétri Zimsen um að það þurfi sannarlega að skoða rótina, sem sagt í grunnskólunum. Ef sífellt færri eru framúrskarandi þar, eins og er raunverulega að hluta til sjónarmið sumra, að það eigi ekki að vera margir framúrskarandi, þá augljóslega kemur það á endanum niður á þessu. Eins þarf að skoða líka tímana sem við lifum, þ.e. gervigreindaröld. Grein í The Atlantic orðaði það þannig að gervigreindin væri sérsniðin til að koma í staðinn fyrir fólkið sem bjó hana til og það er náttúrlega fólkið í STEM-greinunum. Þannig að sannarlega verður umbylting á þessu sviði með gervigreindinni.

Af því að ég er nú hugvísindamaður og reyni að tala máli þeirra á þessum síðustu og verstu tímum, sem er ekki alltaf einfalt og ekki síst í svona umræðu þar sem allt snýst um verðmætasköpun og annað, þá bendi ég á að ekki óframsýnni maður en t.d. fjárfestingajöfurinn í Kísildal, Peter Thiel, talaði um það í viðtali sem ég las við hann í fyrra að tilfinning hans væri sú — og hann hefur nú spáð fyrir um marga þróunina á sviði tækninnar, fjárfestinga og nýsköpunar — að það væri ekki endilega þannig að þessi þróun öll, gervigreindarþróunin, væri t.d. að fara að verða stærðfræðingum í hag eða stærðfræðiþenkjandi fólki, heldur ekki síst fólki orðanna. Þetta væri að fara að verða þeim í hag sem eru að fást við orð, að skrifa og hugsa, þ.e. að þegar við erum að tala við vélarnar er það ákveðinn styrkleiki að geta orðað skýra og góða hugsun.

Mér finnst ástæða til að vekja athygli á því í þessari umræðu vegna þess að ég veit um dæmi af því að fólk útskrifist t.d. úr STEM-greinum, ágætum STEM-greinum sem ég er ekkert að tala niður, síst af öllu, en það útskrifist kannski með meistaragráðu í slíku, óskrifandi, úr háskóla. Og þess eru mörg dæmi. Menn eru oft óskrifandi að útskrifast úr þessum vísindagreinum í háskóla.

Þannig að ég held að vísindin þurfi sannarlega að halda í grunninn, sem er að orða hugsun sína skýrt og vel en ekki bara fela gervigreindinni að gera það, vegna þess að ef þú felur alltaf einhverjum öðrum að hugsa fyrir þig þá hættirðu að geta hugsað sjálfur. En ég fer síðan vonandi í seinni ræðunni aðeins betur út í erlendu sérfræðingana.