staða verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi.
Frú forseti. Mín tíu sent inn í þessa umræðu, hún er nú farin langt frá því sem ég bjóst við í upphafi, er að ég hefði viljað beina því til hæstv. ráðherra að skoða kannski grunninn. Þetta eru að einhverju leyti kynjaðar greinar. Ég er að fara út á hálan ís eflaust en hlutfallið í háskólaumhverfinu hefur breyst þannig að konur og stúlkur eru um 60% nemenda í námi. Kannski hefur það eitthvað með það að gera en í það minnsta, áður en hlaupið er í ívilnanir og einhverjar tilfærslur, mætti kanna kannski grunninn og áhugasviðin og hvernig þessi eftirfylgni er sem þarf til að ljúka námi.