staða verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi.
Virðulegur forseti. Kerecis, Controlant, CCP, Grid, Marel, Meniga og Myrkur Games. Þetta, gott fólk, er ekki einhvers konar orðasalat. Þetta eru þau fyrirtæki sem hafa verið að skapa gríðarlega þekkingu og verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Og ég gæti haldið áfram: Oculis, Lucinity, Bláa lónið, GeoSilica, 1939 Games, Aldin Dynamics. Já, þetta eru fyrirtæki sem eru vissulega komin mislangt í sinni verðmætasköpunarvegferð, en við vitum að ef þeim tekst vel til þá græða allir, allir í íslensku samfélagi. Og allt, góðir hálsar, virðulegur forseti, eru þetta nýsköpunarfyrirtæki sem byggja á STEM-greinum. Því vil ég þakka hv. þingmanni fyrir að efna til þessarar umræðu hér í dag því að hún er grundvöllur að svo mörgu öðru fyrir okkar samfélag. Við sjáum að þetta er mikilvægt fyrir atvinnuþróun og atvinnustefnuna ef hún á að byggjast á verðmætasköpun. Þetta er líka mikilvægt ef við horfum á þá tæknibyltingu sem er fram undan með gervigreind. Þetta er gríðarlega mikilvægt til að fá unga fólkið okkar aftur heim úr námi. Hugsið ykkur hvað þessi fyrirtæki hafa dregið margar fjölskyldur hingað sem hafa jafnvel stofnað önnur fyrirtæki. Og svona heldur boltinn áfram að rúlla. Þetta eru, heilt á litið, einfaldlega gríðarlega mikilvæg fyrirtæki fyrir samkeppnishæfni Íslands.
Því langar mig að varpa fram einu sem hæstv. ráðherra hefur komið inn á. Við erum að tala um átak í grunnskólum, átak í framhaldsmenntun, en ég segi: Hæstv. ráðherra, við þurfum ekki einhvers konar átak eða skoðun, við þurfum sókn. Við þurfum sókn núna af því að þessi mál eru að breytast hratt. Mig langar að heyra meira um það hvernig sú sókn birtist (Forseti hringir.) og líka hvernig sú sókn birtist í samhengi við stuðning við slíkar áherslur í nýsköpunarumhverfinu og hvernig það samtvinnast inn í atvinnustefnu sem er nú í mótun.