157. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2025.

staða verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi.

[16:01]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir að efna til þessarar góðu umræðu. Í grunninn blasir það bara við að fjárfesting í menntun er auðvitað ein besta fjárfestingin sem við getum farið í sem samfélag. Þetta er undirstaða verðmætasköpunar eins og hefur komið fram hér áðan og við höfum heyrt hér í þessari umræðu pælingar um kynjavinkla, gervigreind og svo mætti lengi telja.

Arðsemi háskólamenntunar er eitthvað sem hefur verið mér hugleikið lengi og mér skilst að Ísland sé með þeim lægri innan OECD er kemur að arðsemi háskólamenntunar. Það er eitthvað sem við þurfum að hugsa vel um þegar við erum að tala um að fjárfesta í menntun. Fólk þarf að finna hag sinn í því að fara og mennta sig, sérstaklega á háskólastigi.

Ég er sammála því sem hefur komið fram hér að grunnurinn er það sem öllu máli skiptir. Við verðum að huga að áhugahvötinni, að því að kveikja þessa neista hjá börnunum okkar, hafa áhuga á náttúrunni, á stærðfræði, að kunna að diffra og tegra, og allt þetta, þetta skiptir víst allt máli. En ég held að þetta sé líka spurning um þessa seiglu, að við lærum að sitja við, gera stundum leiðinlega hluti, endurtaka þá o.s.frv. sem felst í því að læra kannski stundum í þessum STEM-greinum, ég tala nú bara af reynslu sem nemandi og nú sem foreldri, að þylja upp algebru og þetta, þetta er endurtekning og þetta er æfing í því að leiða út jöfnur og setja hluti í eitthvert samhengi. Ég vil einmitt taka undir það sem hefur komið fram hér að þetta snýst um þennan grunn, snýst um að kveikja neistann og áhugann, efla menntunina, efla fagfólkið og einmitt fjölga tímunum sem við verjum í þessar greinar.

Á endanum er hugvitið okkar orðið þessi fjórða stoð í okkar hagkerfi, sem betur fer, og við eigum að byggja áfram á þeim grunni vegna þess að við getum ekki alltaf stólað á heppni þegar kemur að ytri skilyrðum hvað varðar hinar atvinnugreinarnar okkar. Hugvitið er komið til að vera, sem betur fer, færir okkur nýsköpun, færir okkur tækni og STEM-greinarnar eru þar algjört lykilatriði.