staða verkfræði-, stærðfræði-, raunvísinda- og náttúruvísindanáms á háskólastigi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir að vekja þetta mikilvæga mál um stöðu STEM-greina á háskólastigi til umræðu. Þetta eru greinar sem skipta miklu fyrir framtíð Íslands, bæði hvað varðar nýsköpun og þróun fjölbreytts atvinnulífs. Sjálf er ég búsett á landsbyggðinni og veit hversu miklu máli það skiptir að hafa raunverulegt aðgengi að háskólanámi, ekki síst þegar kemur að framhaldsnámi.
Í byggðalegu samhengi er oft rætt um skort á sérfræðistörfum sem krefjast háskólamenntunar, þar með töldum STEM-greinum, og ábendingar um aðgengi að námi koma mjög oft upp í samtölum mínum við fólk úti á landi. Það mun ýta undir fjölbreytni starfa á landsbyggðinni. Margir standa frammi fyrir því að þurfa að flytja búferlum, jafnvel með fjölskyldu, ef þeir vilja halda áfram námi. Við þurfum að skapa fleiri leiðir sem gera fólki kleift að mennta sig í heimabyggð þegar á við. Það styrkir bæði einstaklinga og samfélög. Ég vil nefna nýlega stofnað rannsóknasetur Háskóla Íslands á Eskifirði á sviði menntavísinda. Það verkefni, sem hæstv. ráðherra hefur átt frumkvæði að, er jákvætt skref í átt að eflingu rannsókna og þróunarstarfs á landsbyggðinni. Þar má einnig nefna samstarf Austurbrúar, Háskólans á Akureyri og Háskólans í Reykjavík um nám í tölvunarfræði á Austurlandi. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að leita leiða til að efla slíkar námsleiðir enn frekar, ekki síst í STEM-greinum, til hagsbóta fyrir nemendur, fjölskyldur þeirra og samfélög sem þau starfa í.